+354 420 2100
festa@festa.is
Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær
Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15
Kirkjubraut 40, 300 Akranes
Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15
Austurvegur 56, 800 Selfoss
Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12
Kennitala: 571171-0239
Sjóður 800 / Séreignasjóður 801
Krossmói 4a, 260 Reykjanesbær
Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15
Kirkjubraut 40, 300 Akranes
Mán – fim: 09 – 16 og fös: 09 – 15
Austurvegur 56, 800 Selfoss
Mán – fim: 09 – 13 og fös: 09 – 12
Kennitala: 571171-0239
Sjóður 800 / Séreignasjóður 801
Stjórn Festu lífeyrissjóðs hefur samþykkt ársreikning sjóðsins fyrir árið 2024. Til upplýsinga fyrir sjóðfélaga verða hér birtar helstu niðurstöðutölur ársreikningsins. Ársreikningurinn mun verða birtur í heild sinni á heimasíðu sjóðsins í aðdraganda ársfundar sjóðsins sem fyrirhugað er að halda 5. maí nk.
Fjöldi sjóðfélaga sem greiddu iðgjöld á árinu 2024 voru samtals 20.223. Fjöldi sjóðfélaga með réttindi í árslok 2024 var 113.401. Launagreiðendur voru 3.128.
Iðgjöld til sjóðsins námu tæplega 17 milljörðum króna og hækkuðu um 9,1% frá árinu 2023.
Lífeyrisgreiðslur á árinu námu rúmlega 8,3 milljörðum króna og hækkuðu um 12,8% frá fyrra ári. Heildarfjöldi lífeyrisþega var 12.764 en þeim fjölgaði um tæp 9% á árinu.
Hrein eign sjóðsins í árslok 2024 var samtals tæplega 320 milljarðar króna og jókst um 14,2% frá fyrra ári eða um tæpa 39,8 milljarða króna. Hrein eign samtryggingardeildar nam rúmlega 318 milljörðum króna og séreignardeilda tæplega 1,9 milljarði króna.
Hrein nafnávöxtun samtryggingardeildar sjóðsins var jákvæð um 10,6% og hrein raunávöxtun var jákvæð um 5,6%, en verðbólga mældist 4,8% yfir árið. Tryggingafræðileg staða samtryggingardeildar var jákvæð, en eignir voru 0,2% umfram skuldbindingar sjóðsins í árslok 2024.
Hrein nafnávöxtun sparnaðarleiðar 1, var jákvæð um 8,8% og hrein raunávöxtun var jákvæð um 3,8%. Hrein nafnávöxtun sparnaðarleiðar 2, var jákvæð um 14,4% og hrein raunávöxtun var jákvæð um 9,2%.
Eins og að framan greinir er fyrirhugað að halda ársfund sjóðsins 5. maí nk. Dagskrá fundarins verður auglýst á heimasíðu sjóðsins og í dagblöðum.
LL stóð fyrir málstofu í samstarfi við Mannauð, félag mannauðsfólks á Íslandi, þann 27. nóvember 2024.
Ráðgjafar 18 lífeyrissjóða og viðræðunefnd fjárlaga- og efnahagsráðherra hafa komist að niðurstöðu um að leggja fyrir fund skuldabréfaeigenda tillögu að uppgjöri HFF-bréfa sem greiða mun fyrir slitum ÍL-sjóðs. Í tillögunum felst að kröfur verða efndar með afhendingu ríkisskuldabréfa, annarra verðbréfa og reiðufjár í gjaldeyri og íslenskum krónum. Með þessu verður ÍL-sjóði gert kleift að standa við skuldbindingar sínar gagnvart eigendum HFF-bréfanna og öðrum kröfuhöfum.
Tillögur ráðgjafa og viðræðunefndar verða lagðar fyrir fund skuldabréfaeigenda til samþykktar, en samþykki 75% kröfuhafa þarf til. Reiknað er með að sá fundur fari fram í apríl. Verði tillögurnar samþykktar mun fjármála- og efnahagsráðherra í framhaldi sækja heimild til Alþingis til að ljúka uppgjörinu með frumvarpi til fjáraukalaga.
Með þessum tillögum skapast grundvöllur til að ljúka langvinnu úrlausnarefni ríkissjóðs en viðræður um málið hafa staðið yfir í rúmlega eitt ár.
Kröfur samkvæmt HFF-bréfum í uppgjörinu nema 651,4 milljörðum króna og samkvæmt tillögum ráðgjafa og viðræðunefndar mun ÍL-sjóður og íslenska ríkið afhenda kröfuhöfum verðtryggð og óverðtryggð ríkisskuldabréf að upphæð 540,4 milljarða króna, önnur verðbréf að verðmæti 38 milljarða króna, reiðufé í gjaldeyri að verðmæti 55 milljarða króna og 18 milljarða í íslenskum krónum.
Almenni lífeyrissjóðurinn og Brú lífeyrissjóður hafa ákveðið að hefja samstarf um séreignarsparnað.
Líflegar umræður áttu sér stað við pallborð að loknum fróðlegum framsöguerindum á málþingi Landssamtaka lífeyrissjóða um samskipti fjárfesta og stjórna félaga.
LL stóðu fyrir málstofu um samskipti fjárfesta og stjórna félaga.
Árið 2024 var raunávöxtun lífeyrissjóða jákvæð um 6,5%
Launagreiðendayfirlit hafa verið birt á launagreiðandavefnum á festa.is fyrir tímabilið júlí -des 2024.